Borås?

"Í yfirlýsingu kemur fram að stúlkan sé frá sænska bænum Boras".

Kannast ekki við þennan bæ. Hins vegar er sænski bærinn Borås vel þekktur.


mbl.is Sænskri stúlku bjargað frá Ríki íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír sólarhringar

Þetta orðfæri "72 tímar" er enskt. Í það tungumál vantar orð yfir sólarhring. Það er engin ástæða til þess að umorða 3 sólarhringar yfir í þetta enska orðfæri.


mbl.is Horfðust í augu við dauðann í 72 tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krampakenndar tilraunir

„nema krampa­kennd­ar til­raun­ir til að sleppa við ábyrgð á eig­in gerðum,“ seg­ir Árni Páll.

Eru þetta etv. "krampakenndar tilraunir" Árna Páls til þess að fjarlægja sig og Samfylkinguna frá "nýja fjármagninu" sem þeir voru svo hrifnir af meðan á bólunni stóð. Þegar helztu forvígismenn "nýja fjármagnsins" hafa verið dæmdir fyrir hvers kyns fjármálaafbrot er kominn tími til að beina athyglinni að einhverju öðru.

 


mbl.is Skýringarnar „mótsagnakenndar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heitir ekki Nornahraun

Þessu nýja hrauni sem myndazt hefur við jarðelda í Holuhrauni, hefur enn ekki verið gefið nafn. Tillagan um Nornahraun byggist á því að upp kom svokallað nornahár (http://en.wikipedia.org/wiki/Pele%27s_hair). Þetta eldgos er þó ekkert sérstakt með það. Nornahár hefur áður orðið til í eldgosum á Íslandi. Hraun á Íslandi heita yfirleitt eftir einhverju í nágrenninu eða bújörð sem á landið. Búskapur er enginn nálægt þessu hrauni og fátt um örnefni þar sem lítil beit hefur verið þar um slóðir. Hraunið er að hylja töluverða sneið af svokölluðum Flæðum. Út frá því lagði ég til að hraunið yrði kallað Flæðahraun.


mbl.is Nornahraun orðið 81 ferkílómetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er á norðurhveli

Það virðist gleymast hjá þessu ágæta fólki úr heilbrigðisgeiranum að Ísland er norðar en öll önnur sjálfstæð ríki. Aðeins Grænland er oðrðar. Þetta veldur því að nú er myrkur þegar flestir fara til vinnu og eða skóla og myrkur líka þegar haldið er heim. Þetta kemur til með að ágerast fram undir jól og haldast út skammdegið. Þær ransóknir em stuðzt er við hafa væntanlega verið gerðar erlendis og þar er ekki nærri svona mikill munur birtu sumars og vetrar. Þótt töluverður mannfjöldi eigi heima í t.d. Norður-Skandinavíu er það óverulegur hluti þeirra þjóða.

Ef klukkunni yrði seinkað myndi fylgja því að taka þyrfti upp smartíma (þ. e. á sumrin yrði klukkan stillt eins og núna). Þessu fylgir að breyta þyrfti klukkunni haust og vor eins og var gert hér á landi í áratugi og kallað "klukkuruglið". Árið 1968 þegar því var hætt (löngu á eftir öllum öðrum löndum) var fólk ákaflega fegið að vera laus við þetta rugl. Þetta var svo tekið upp víða annars staðar í olíukreppunni á áttunda áratugnum. Okkur nægði að hafa sumartíma, þvi að á veturna er dimmt hvort eð er og engin ástæða til þess að hringla með klukkuna tvisvar á ári.

 


mbl.is Mjög brýnt að seinka klukkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stór fyrirsögn yfir lítið

Það eru stór orð að Júlíus sé "óvinsælastur". Útstrikanir eru hverfandi og hafa ugglaust miðað að því að koma konum ofar á listann.
mbl.is Júlíus Vífill oftast strikaður út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungir umhverfissinnar hlaupa á sig

Til stendur að stækka friðland Þjórsárvera út fyrir verin. Þau hafa verið friðuð frá 1981. Um það er enginn ágreiningur. Víðtæk sátt náðist um stækkun friðlandsins 2007, en síðan var farið í að stækka svæðið til suðurs beinlínis í þeim tilgangi að koma í veg fyrir veitu sem kennd er við Norðlingaöldu. Sú veita snertir ekki Þjórsárver á nokkurn hátt svo að þessi ályktun "Ungra umverfissinna" er algjörlega út í hött.
mbl.is Umhverfissinnum „gjörsamlega ofboðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næringarfræðina virðist vanta

Þetta er yfirtaks vitleysisgangur. Offita barna í Bandaríkjunum kermur ekki á óvart miðað við þá fæðu sem þar í landi er boðið upp á. Gosdrykkjaþamb er þar mikið eins og hér og víðar og ennfremur er flest það sem í boði þar er bæði feitt og sætt. Matur þar sem kjöt eða fiskur er uppistaðan þarf ekki að vera fitandi, en ef ausið er bæði fitu og sætindum getur auðvitað orðið til mjög fitandi fæða. Næringarfræðingar hafa þetta alveg á hreinu, en það er erfitt fyrir marga að fara að ráðum þeirra. Eitt af þeim ráðum sem þeir gefa gjarnan er að fæðan sé fjölbreytt og án viðbætts sykurs.
mbl.is Hvorki kjöt né fiskur í mötuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómur samþykkir þjófnað

Eftir þessari frétt að dæma, hefur dómstóllinn þarna veitt blessun sína yfir einföldum þjófnaði. Lánveitandinn hefur allar upplýsingar, eða getur aflað þeirra. Hann veitir lán manni sem engar minnstu líkur eru á að geti greitt til baka. Það eina sem út úr þessu kemur er að eign konunnar er tekin af henni. Það heitir þjófnaður hjá öllu venjulegu fólki en ekki hjá dómstólnum. Það er ekki að furða þótt fólk standi í þeirri meiningu að sumum sé heimilt að stela en öðrum ekki.
mbl.is Tekjulítill en skuldaði 145 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Skúli Víkingsson

Höfundur

Skúli Víkingsson
Skúli Víkingsson
Jarðfræðingur. Áhugamaður um allt mögulegt
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • veghefill
  • Capture
  • mynd Vodafone
  • vodafone eldgos
  • ...4050_974129

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband