Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Varizt lægðir í landslagi

20100325164050_974129.jpgÞessi mynd var tekin kl. 16:41 í gærdag. Þar er gufa innst í þeim hluta Hrunaárgils sem sést á myndinni. Neðan við gufuna er mjór hraunstraumurinn, svartur á að líta. Í neðsta hluta gilsins sem sést á myndinni er gilbotninn eins og hann var fyrir gos, grýttur og vatnssorfinn. Það er stórhættulegt að reyna að fikra sig inn eftir gilinu. Þær eiturgufur sem fylgja eldgosum og helzt hafa orðið mönnum að aldurtila eru þyngri en andrúmsloftið og streyma eins og ósýnilegar ár niður hlíðar og gil. Við sérstök skilyrði í loftinu má stundum sjá slíka gasstrauma og ljósmyndarar lágu sumir þolinmóðir yfir tækifæri til þess að mynda slíkt í Heimaeyjargosinu. Forðizt líka allar skjólsælar skvompur utan við gilið. Þótt enn hafi ekki verið staðfest gasstreymi frá þessu gosi, má reikna með því. Gera má ráð fyrir miklum straumi fólks inn í Bása og áfram inn að gosstöðvum um helgina svo að það er full ástæða til þess að vara við gasinu.
mbl.is Varað við banvænum eiturgufum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Skúli Víkingsson

Höfundur

Skúli Víkingsson
Skúli Víkingsson
Jarðfræðingur. Áhugamaður um allt mögulegt
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • veghefill
  • Capture
  • mynd Vodafone
  • vodafone eldgos
  • ...4050_974129

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband